Landsliðsmaðurinn Arnar Freyr Arnarsson gengur til liðs við þýska félagið SG Flensburg-Handewitt í sumar. Handkastið greinir frá og kveðst hafa heimildir fyrir því að hann verði tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins á næstu dögum. Samningur Arnars Freys við þýska félagið MT Melsungen rennur út að loknu tímabilinu.
Nokkurs konar leikmannaskipti verða því hjá félögunum tveimur þar sem Johannes Golla, landsliðsfyrirliði Þýskalands, fer frá Flensburg til Melsungen í sumar. Báðir eru þeir stórir og stæðilegir línumenn.
Arnar Freyr er að ljúka sínu sjötta tímabili með Melsungen og hafði áður greint frá því að hann myndi ekki skrifa undir nýjan samning við félagið.
Hann er þrítugur og hefur áður leikið með GOG Håndbold í Danmörku, IFK Kristianstad í Svíþjóð og uppeldisfélagi sínu Fram hér á landi.
Viggó Kristjánsson, leikmaður HC Erlangen, gengur einnig til liðs við Flensburg en ekki fyrr en sumarið 2027.



