- Auglýsing -
Magnus Saugstrup, línumaður SC Magdeburg og danska landsliðsins, vakti nokkra athygli fyrir brot sitt í sigri liðsins á Frisch Auf! Göppingen í þýsku 1. deildinni á sunnudag. Þar tilkynnti hann dómurum leiksins sjálfur að hann ætti skilið tveggja mínútna brottvísun.
Saugstrup, sem einnig er öflugur varnarmaður, var í varnarstöðu þegar hann sló í andlit andstæðings síns. Saugstrup rétti tafarlaust upp höndina til að viðurkenna brotið og gaf svo merki með tveimur puttum.
Bað hann andstæðing sinn afsökunar og gekk svo af velli eftir að hafa gert dómurunum eins auðvelt fyrir og mögulegt var að taka ákvörðun um refsingu.
Myndskeið af þessu athyglisverða atviki má sjá hér fyrir neðan:
- Auglýsing -


