- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Viktor, Reynir, Arnar, Heiðmar, Tumi, Tryggvi

- Auglýsing -
  • Viktor Gísli Hallgrímsson var annan hálfleikinn í marki Barcelona í gær þegar liðið vann Ademar á heimavelli, 48:31. Viktor Gísli varði 7 skot, 30%. Barcelona er þegar með öruggt um meistaratitilinn á Spáni sextánda árið í röð.
  • Reynir Þór Stefánsson skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu og Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark í fjögurra marka sigri MT Melsungen, 32:28, á GWD Minden í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. Melsungen er í 7. sæti með 34 stig eftir 28 leiki.
  • Eftir fremur slakt gengi síðustu vikur ráku leikmenn Hannover-Burgdorf af sér slyðruorðið í gær og unnu Eisenach á útivelli í 27. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, 35:26. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Liðið er í 10. sæti með 24 stig.
  • Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fimm mörk og gaf eina stoðsendingu í tveggja marka sigri Alpla Hard á Linz, 26:24, á heimavelli í austurrísku 1. deildinni í handknattleik. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark fyrir Alpla Hard en gaf eina stoðsendingu. Alpla Hard er efst í deildinni með 25 stig eftir 20 leiki, er tveimur stigum á undan Voslauer sem á leik inni. Linz er í þriðja sæti með 22 stig. Alpla Hard á tvo leiki eftir áður en kemur að úrslitakeppninni.
  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -