- Auglýsing -
- Portúgalski handknattleiksmaðurinn Daniel Vieira sem lék með ÍBV frá 2023 til 2025 hefur samið við spænska liðið Balonmano Cajasol Ángel Ximénez frá og með næsta keppnistímabili. Hann leikur nú með Saran Loiret HB í næstefstu deild franska handknattleiksins og lýkur væntanlega keppnistímabilinu með liðinu.
- Færeyska landsliðskonan Súna Krossteig Hansen hefur samið við svartfellska stórliðið ŽRK Budućnost. Hún hefur undanfarin ár leikið með Skanderborg í dönsku úrvalsdeidinni. ŽRK Budućnost leikur í Meistaradeild Evrópu. Hansen leikur með færeyska landsliðinu á væntanlegum heimavelli í dag í lokaumferð riðlakeppni EM kvenna. Færeyingar sækja þá Svartfellinga heim í Bemax Arena í Podgorica. Báðar þjóðir hafa tryggt sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem hefst 3. desember.
- Önnur færeysk landsliðskona, Pernille Brandenborg, mun hafa samið við rúmenska meistaraliðið CSM Búkarest. Brandenborg leikur nú með norska meistaraliðinu Storhamar. Svartfellingurinn Bojana Popovic er þjálfari CSM auk þess að vera aðstoðarþjálfari danska kvennalandsliðsins.
- Vilius Rašimas, fyrrverandi markvörður Selfoss og Hauka, var á dögunum kjörinn formaður handknattleikssambands Litáen. Hann tekur við af Tadas Janson sem setið hefur á stóli formanns til bráðabirgða síðan í desember. Rašimas, sem hætti í handbolta fyrir ári, var kjörinn til fjögurra ára. Mikill hugur er í Rašimas sem ætlar að nýta yfirgripsmikla reynslu sína til þess að byggja upp öflugra handboltasamfélag í Litáen.
- Slóvenski handknattleiksmaðurinn Dean Bombač hefur samið við þýska liðið Leipzig um að leika með því áfram á næstu leiktíð. Bombač kom til félagsins í desember sem hluti af björgunaraðgerðum frá falli úr efstu deild. Koma hans hefur litlu breytt því enn rekur Leipzig lestina í deildinni. Bombač er 37 ára gamall og er sennilega kominn inn á síðari hluta ferilsins.
- Auglýsing -



