Ásamt Íslandi tryggðu fimm þjóðir til viðbótar sér þátttökurétt á EM 2026 í lok ársins þegar undankeppninni lauk í dag. Þær eru Serbía, Austurríki, Grikkland, Úkraína og Norður-Makedónía.
Serbía tryggði sæti sitt með 30:21 sigri á Úkraínu í 5. riðli og Úkraína er eitt af fjórum liðum með bestan árangur í þriðja sæti og fer því einnig á mótið.
Dregið verður í riðla fyrir lokakeppnina fimmtudaginn 16. apríl í Katowice í Póllandi.
Ísland á EM með glæsibrag – stórsigur á Portúgal
Í Austurríki var það sama uppi á teningnum þegar heimakonur gjörsigruðu Grikkland, 38:16. Austurríki tryggði sér annað sæti 6. riðils og Grikkland er með fjórða besta árangur liða í þriðja sæti. Ísland er með þann besta.
Norður-Makedónía var með þriðja besta árangurinn af liðunum í þriðja sæti og kom tap fyrir Slóveníu á útivelli, 27:18, í 3. riðli ekki í veg fyrir það.
Úkraína, Norður-Makedónía og Grikkland skákuðu Finnlandi og Ítalíu í baráttunni um besta árangurinn í þriðja sæti með því að vera með betri markatölu.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
Átján lið búin að tryggja farseðilinn á EM 2026 – bætist Ísland í hópinn?



