- Auglýsing -
Mattý Rós Birgisdóttir er gengin til liðs við Aftureldingu frá Víkingi Reykjavík. Skrifaði hún undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Aftureldingar.
Mattý Rós, sem er 21 árs hornamaður, er uppalin hjá HK en hafði leikið með Víkingi frá árinu 2023.
Andrea Ósk frá Víkingi til Aftureldingar
Afturelding leikur í Grill 66 deildinni líkt og Víkingur. Víkingur hafnaði í þriðja sæti deildarinnar í vor og féll úr leik gegn Gróttu í umspili um sæti í Olísdeildinni.
Afturelding hafnaði í sjöunda sæti Grill 66 deildarinnar og ætlar sér stærri hluti á næsta tímabili.
- Auglýsing -



