Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í HC Oppenweiler/Backnang eru komnir langleiðina með að falla úr þýsku B-deildinni niður í C-deildina eftir enn eitt tapið um liðna helgi.
Oppenweiler/Backnang er með einungis tvö stig á botni deildarinnar og hefur ekki unnið einn einasta leik í 27 tilraunum. Tapleikirnir eru 25 og tapi liðið næsta leik er það fallið.
Á laugardag fékk Oppenweiler/Backnang lið Dessau-Rosslauer HV 06 í heimsókn og tapaði 33:35. Tjörvi Týr skoraði eitt mark úr eina skoti sínu í leiknum og var einu sinni vikið af leikvelli í tvær mínútur.
Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í Nordhorn-Lingen unnu góðan heimasigur á TuS N-Lübbecke, 34:32, á laugardag.
Elmar skoraði eitt mark úr fjórum skotum og gaf fjórar stoðsendingar. Nordhorn-Lingen er í sjötta sæti með 34 stig, tíu stigum á eftir HBW Balingen-Weilstetten í öðru sæti. Tvö efstu liðin fara beint upp í 1. deild.



