- Auglýsing -
Jóhanna Lind Jónasdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt HK og tekur því slaginn með liðinu í Olísdeildinni á næsta tímabili. HK vann Grill 66 deildina í vor og komst þannig upp í deild þeirra bestur.
Jóhanna Lind skrifaði undir tveggja ára samning og er nú samningsbundin félaginu til sumarsins 2028.
Hún er tvítug og leikur í stöðu hægri hornamanns. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Jóhanna Lind leikið með meistaraflokki HK frá árinu 2021.
„Framlenging Jóhönnu staðfestir þá stefnu félagsins að byggja á sínum uppöldu leikmönnum og halda áfram að þróa liðið fyrir komandi tímabil í Olísdeildinni,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.
- Auglýsing -



