Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon er á sínum stað í liði 28. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir að hafa átt sannkallaðan stórleik í 35:31 sigri SC Magdeburg á HC Erlangen í gær.
Ómar Ingi skoraði 14 mörk, þar af átta úr vítaköstum, og gaf þrjár stoðsendingar er Magdeburg styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar.
Íslenskt markaregn í Magdeburg
Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Ómar Ingi er kjörinn í úrvalslið umferðarinnar í þýsku deildinni. Hann var sömuleiðis í liðinu í 22. umferð.
Ómar Ingi er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með 202 mörk. Kai Häfner hjá TVB Stuttgart er næstmarkahæstur með 224 mörk og danska stjarnan Mathias Gidsel er markahæstur með 250 mörk. Allir þrír hafa leikið 28 leiki.



