„Lengd samningsins er ef til vill ein skýring þess hversu langan tíma það tók okkur að ljúka við samningsgerðina. Við gerð sex ára samnings er að mörgu að hyggja af hálfu beggja samningsaðila,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla sem í gær skrifaði undir samning við HSÍ um þjálfun karlalandsliðsins næstu sex ár, fram yfir Ólympíuleikana sem haldnir verða í Brisbane í Ástralíu. Þangað hefur markið verið sett ásamt þátttöku í leikunum í Los Angeles að rúmum tveimur árum liðnum héðan í frá.
Tvennskonar verkefni
„Þegar hugmyndin að sex ára samningi kom upp þá fannst mér hún heillandi. Fyrir mér er um tvö verkefni að ræða. Annars vegar að halda áfram að vinna við og viðhalda því sem við höfum unnið að síðustu þrjú ár, stíga áframhaldandi framfaraskref og vinna til verðlauna á stórmótum. Hluti af því verkefni er að vinna okkur inn sæti á Ólympíuleikunum.
Hins vegar er hinn anginn sem er sá að það sé einhver innan HSÍ sem hefur fókus á framtíðinni og því sem tekur við. Leikmenn landsliðsins eru á mismunandi aldri. Þess vegna þarf endurnýjun að eiga sér stað jafnt og þétt. Endurnýjun landsliðshópsins á ekki eða þarf ekki að vera tilviljunarkennd, að minnsta kosti er það mitt mat. Þess vegna er gott að landsliðsþjálfari sé ráðinn til langs tíma þannig að hann geti horft fram til langs tíma við stöðuga uppbyggingu landsliðsins, m.a. með HM 2031 á heimavelli í huga,“ segir Snorri Steinn.
„Þótt fjárhagur HSÍ leyfi ekki í dag að koma á fót B-landsliði eða halda úti C-landsliði þá er ekki þar með sagt að ég hætti að pressa á þau atriði því vonandi rennur sú stund upp að við getum gert meira en við erum að gera í dag,“ segir Snorri Steinn en meðal hugmynda í stefnumörkun A-landsliðs karla er að bæta við fleiri stigum landsliða.

Ég hef allt aðra sýn á starfið í dag en þá. Bara það að hafa farið með landsliðið í gegnum þrjú stórmót hefur aukið reynslu mína, jafnt sem þjálfari og einstaklingur.
Þjálfarar eru alltaf dæmir af verkum sínum
Þrátt fyrir að samningur HSÍ og Snorra Steins sé til langs tíma dregur Snorri Steinn ekki fjöður yfir það að hann verði alltaf dæmdur af verkum sínum. Stórmót eru á hverju ári og stóll þjálfarans getur orðið valtur, hetja dagsins getur orðið skúrkur morgundagsins.
„Þjálfarar eru og verða ævinlega dæmdir af þeim úrslitum sem þeir ná, sama hver íþróttgreinin er eða hvort sem verið er að þjálfa landslið eða félagslið. Þannig eru íþróttirnar. Þær miðast við árangur. Ég hef hins vegar fulla trú á að við getum haldið áfram að ná mjög góðum árangri og jafnvel bætt í frá því sem verið hefur,“ segir Snorri Steinn sem verður 45 ára gamall í október.
Get ekki hugsað mér betri aðstoðarmann
Arnór Atlason sem unnið hefur með Snorra Steini síðustu þrjú ár verður áfram helsti samstarfsmaður hans næstu árin. Arnór hefur einnig samþykkt sex ára samning.
„Ég get ekki hugsað mér betri samstarfsmann í þessu verkefni og vil hafa hann áfram en auðvitað var það undir honum komið hvort hann vildi halda áfram, sem hann hefur nú gert. Við vorum mjög samstíga en sannast sagna héldu samningaviðræður okkar við HSÍ aldrei á bláþræði,“ segir Snorri Steinn og brosir í kampinn enda hafa alls kyns bollaleggingar verið settar fram á undanförnum vikum sem eiga töluvert skylt við úlfaldann og mýfluguna.

Hefur aðra sýn á starfi í dag en 2023
Snorri Steinn tók við þjálfun landsliðsins um mitt árið 2023. Spurður hvort hann nálgist starfið með öðrum hætti í dag en hann gerði um mitt árið 2023 svaraði Snorri Steinn:
„Ég hef allt aðra sýn á starfið í dag en þá. Bara það að hafa farið með landsliðið í gegnum þrjú stórmót hefur aukið reynslu mína, jafnt sem þjálfari og einstaklingur. Tíminn sem maður hefur hverju sinni til undirbúnings og þátttöku er mjög stuttur og fyrir vikið eiga sér ekki miklar breytingar í hvert skipti sem við hittumst. Eftir þrjú ár finnst mér að okkur hafi tekist í sameiningu að finna leið, skýra sýn, hvernig við viljum gera hlutina og haga okkar starfi, hvað hentar okkur og hvað ekki. Við viljum halda áfram að þróa okkar leið,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik.


