Handknattleiksdeild Aftureldingar stendur í ströngu þessa dagana. Þrír leikmenn hafa nýverið gengið til liðs við kvennaliðið og annað eins af leikmönnum hafa framlengt samninga sína. Nú bætist Ásdís Halla Helgadóttir í hóp þeirra síðarnefndu.
Ásdís Halla er 19 ára línumaður sem skrifaði undir tveggja ára samning. Hún er uppalin hjá Aftureldingu og lauk nýverið sínu þriðja tímabili með meistaraflokki.
„Það er alltaf fagnaðarefni þegar að uppaldir leikmenn framlengja við félagið en við erum mjög glöð með að Ásdís ætli að taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild Aftureldingar.
Afturelding hafnaði í sjöunda sæti Grill 66 deildarinnar á nýafstöðnu tímabili og leikur því áfram í deildinni á því næsta.



