Marcos Fis, 19 ára spænskur landsliðsmaður og leikmaður BM Granollers í heimalandinu, hefur samþykkt að ganga til liðs við stórveldið FC Barcelona sumarið 2027. Þessu greinir spænski miðillinn Mundo Deportivo frá.
Fis, sem er örvhent skytta, skrifar undir þriggja ára samning og mun koma til með að leysa Frakkann Dika Mem af hólmi þegar hann fer frá Barcelona til Füchse Berlín sumarið 2027.
Barcelona hafði verið sterklega orðað við annað ungstirni sem leikur einnig í stöðu hægri skyttu, Portúgalann Kiko Costa hjá Sporting Lissabon, en hann er á leið til SG Flensburg-Handewitt í Þýskalandi.
Fis lét til sín taka með Spáni á EM 2026 í janúar, þá einungis 18 ára gamall, og þykir vonarstjarna þjóðar sinnar. París Saint-Germain, THW Kiel og SC Magdeburg höfðu öll áhuga á honum en nú hefur Barcelona unnið kapphlaupið.



