Danska handknattleiksfélagið Aalborg Håndbold hefur samið við þjálfarann Simon Dahl og aðstoðarþjálfarann Henrik Kronborg um að halda áfram þjálfun karlaliðsins til sumarsins 2029.
Dahl hefur þjálfað stórlið Aalborg með afar góðum árangri frá því í nóvember árið 2024. Kronborg hefur verið honum til halds og trausts allar götur síðan.
Síðan Dahl tók við hefur Aalborg unnið danska meistaratitilinn einu sinni, dönsku bikarkeppnina tvisvar sinnum og deildarmeistaratitilinn tvisvar sinnum. Sigrarnir eru 72 í 84 leikjum í öllum keppnum til þessa.
Á yfirstandandi tímabili er Aalborg komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið mætir Orra Frey Þorkelssyni og félögum í Sporting Lissabon, er þegar búið að vinna deild og bikar og stefnir ótrautt að danska meistaratitilinum þriðja árið í röð.



