- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elín Klara og stöllur auðveldlega í undanúrslit

- Auglýsing -

Landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar hennar hjá IK Sävehof tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn með því að leggja Skuru IK örugglega að velli, 35:29, í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum.

Sävehof vann þar með einvígið 3:0 og sópaði Skuru í snemmbúið sumarfrí. Sävehof varð deildarmeistari og Skuru hafnaði í áttunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og getumunurinn því töluverður.


Elín Klara lét vel að sér kveða eins og hennar er von og vísa og skoraði sex mörk. Var hún næstmarkahæst í leiknum.

Í undanúrslitum mætir Sävehof annað hvort liði Boden Handboll IF eða Höörs HK H 65. Staðan í því einvígi er 2:1 fyrir Höörs og mætast liðin í fjórða leik í Boden á sunnudag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -