Gunnar Steinn Jónsson er á meðal þeirra sem koma til greina í þjálfarateymi karlaliðs IFK Kristianstad. Þjálfarinn Anders Hallberg tekur við þjálfun SL Benfica í sumar og íhugar Mats Samuelsson, íþróttastjóri félagsins nú næstu skref.
Frá þessu er greint í Aftonbladet og vakti Handkastið athygli á málinu. Gunnar Steinn er um þessar mundir í þjálfarateymi karlaliðs Hammarby IF en hann var leikmaður IFK Kristianstad frá 2016 til 2018.
Samuelsson veltir því nú fyrir sér hvaða nálgun sé best í ráðningu á nýju þjálfarateymi og nefndi þrjá möguleika í samtali við Kristianstadsbladet. Björn Sätherström er núverandi aðstoðarþjálfari og þykir líklegur til að halda áfram í starfi, hvort sem það væri áfram sem aðstoðarþjálfari eða nýr aðalþjálfari.
Gunnar Steinn gæti þá komið inn sem nýr aðalþjálfari, verið aðalþjálfari við hlið Sätherström eða aðstoðarþjálfari hans. Ekki er þó búið að staðfesta neitt í þessum efnum að svo stöddu.



