KA/Þór hefur samið við færeysku unglingalandsliðskonuna Joan Rúnadóttur Johannesen um að leika með liðinu á næsta tímabili. Joan kemur frá Kyndil í heimalandinu.
Joan er 19 ára gömul og leikur í hægra horni. Varð hún meðal annars færeyskur meistari og bikarmeistari með Kyndil, þar sem Joan hefur staðið sig vel undanfarin tímabil.
Færeysk unglingalandsliðskona til KA/Þórs
KA/Þór samdi nýverið við aðra færeyska unglingalandsliðskonu, Agöthu Kjærbek Djurhuus, til tveggja ára. Hún er einnig 19 ára gömul og leikur sem línumaður.
„Joan er fastamaður í yngrilandsliðum Færeyja en rétt eins og Agatha sem skrifaði undir hjá KA/Þór í vikunni er hún farin að banka fast á dyr A-landsliðsins þar sem hún hefur komið inn í æfingahóp í nokkur skipti.
Við erum afar spennt að fá hana Joan hingað norður og verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar og Agöthu en eins og flestir ættu að vita hefur færeyskur handbolti verið í gríðarlegri sókn og klárt að koma þeirra norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar fyrir komandi baráttu næsta vetur,“ segir meðal annars í tilkynningu KA/Þórs.


