Althea Reinhardt, markvörður Odense Håndbold og danska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá skot í höfuðið í upphitun fyrir leik liðsins gegn Horsens í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi.
TV 2 Sport greinir frá því að Reinhardt hafi gengið grátandi af leikvelli eftir atvikið. Hún var nýsnúin aftur eftir að hafa glímt við meiðsli og hefur áður hlotið slæm höfuðhögg í leikjum þar sem Reinhardt hefur til að mynda fengið heilahristing.
Jakob Vestergaard þjálfari Odense sagði þó við danska miðilinn að svo virtist sem Reinhardt væri í lagi. Hún hafi náð að snúa aftur til upphitunar þó ekki hafi verið tekin áhætta með að spila henni í leiknum, sem Odense vann 30:21 í Horsens.
Ekki er búist við því að Reinhardt verði lengi frá vegna atviksins, betur hafi farið en á horfðist í fyrstu þar sem viðbrögð hennar vöktu áhyggjur viðstaddra.



