Samtök evrópsks handknattleiksfólks, EHPU, hafa gefið það út að þau standi þétt við bakið á Jim Gottfridsson eftir að samningi hans hjá ungverska félaginu Pick Szeged var sagt upp einhliða.
Gottfridsson lýsti yfir óánægju sinni eftir að Szeged sagði samningi hans, sem átti að renna út sumarið 2028, fyrirvaralaust upp. Hyggst Svíinn reyndi leita réttar síns en Szeged kvaðst í yfirlýsingu ekkert rangt hafa aðhafst við uppsögn samningsins.
„Með heiðarleika og fagmennsku íþróttarinnar okkar að leiðarljósi er afar mikilvægt að samningur milli félags og leikmanns sé virtur af báðum aðilum og að ekki sé hægt að segja honum upp einhliða af öðrum aðilanum án gildrar ástæðu,“ sagði Torben Vinther forseti EHPU í yfirlýsingu samtakanna.
„Við erum sannfærð um að við deilum þessari skoðun með öllum hagsmunaaðilum í handbolta, þeirra á meðal leikmanna, félaga, deilda, landssambanda og IHF. Við erum staðráðin í að ljúka þessu máli með því að ná fram sanngjarnrri og viðunandi niðurstöðu fyrir Jim Gottfridsson,“ sagði einnig í yfirlýsingunni.



