FH lagði Hauka í fjórðu viðureign Hafnarfjarðarliðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik í gærkvöld, 36:35. Lokasekúndur leiksins voru dramatískar en Daníel Freyr Andrésson markvörður FH sá til þess að ekki kæmi til framlengingar með því að verja skot úr tveimur opnum færum á síðustu sekúndum leiksins.
Með sigrinum tryggði FH sér þriðja og síðasta vinninginn til þess að vinna einvígið við Hauka, 3:1, í vinningum talið.
FH mætir Val í úrslitaleikjum um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta viðureign liðanna verður á heimavelli Vals næsta föstudag, 24. apríl. Valur og FH mættust síðast í úrslitum Íslandsmóts karla fyrir níu árum.
Jói Long myndaði viðureign Hauka og FH í í Kuehne+Nagel höllinni. Hér fyrir neðan er hluti þeirra mynda sem Jói sendi frá sér.
-Smellið á myndirnar að sjá þær stærri.
Daníel Freyr skellti í lás á síðustu sekúndunum – FH er komið úrslit
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026





































