Íslendingalið SC Magdeburg átti ekki góða helgi þar sem það tapaði báðum leikjum sínum um úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar. Í þokkabót voru Felix Claar og Albin Lagergren, sænskir leikmenn liðsins, rændir eigum sínum.
Magdeburg hafnaði í fjórða sæti bikarkeppninnar eftir að hafa tapað fyrir lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar eftir vítakeppni í undanúrslitum á laugardag og tapaði svo fyrir TBV Lemgo í bronsleiknum í gær.
Þýski miðillinn Handball World greinir svo frá því að á meðan aðrir liðsmenn og þjálfarateymi Magdeburg hafi verið komnir upp í liðsrútu eftir bronsleikinn hafi Claar og Lagergren gengist undir lyfjapróf.
Á þeim tímapunkti hafi búningsklefinn verið opinn og óprúttnir aðilar farið í óleyfi inn í hann og tekið eigur Svíana tveggja ófrjálsri hendi. Magdeburg hafði samband við lögregluna í Köln, sem lagði til að félagið legði fram kvörtun á netinu.



