- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gat ekki staðið úti í mínus sex gráðum í desember

- Auglýsing -

Emil Nielsen, einn besti ef ekki besti markvörður heims, segir nokkuð skondna ástæðu liggja að baki því að hann hafi ákveðið að velja handbolta fram yfir fótbolta á sínum yngri árum.

Nielsen er 29 ára gamall aðalmarkvörður danska landsliðsins og myndar markvarðateymi með Viktori Gísla Hallgrímssyni hjá FC Barcelona. Hann ólst upp hjá AGF í Árósum og þótti einnig liðtækur markvörður í fótbolta.


„Ég lék bæði handbolta og fótbolta hjá AGF, þar sem ég eyddi stærstum hluta æsku minnar. Ef ég á að vera hreinskilinn um hvers vegna handbolti varð fyrir valinu þá verður að segjast að ég stóð mig mjög vel sem markvörður í fótbolta en að standa í stuttbuxum í mínus sex gráðum í desember var einfaldlega ekki fyrir mig.

Ég gat einfaldlega ekki höndlað það. Svo kom að því að ég þurfti að velja á milli handbolta og fótbolta og þá valdi ég þægilega kostinn, innanhúsíþróttina. Kannski er ég aðeins of afslappaður. Þegar allt kom til alls var það kannski ástæðan fyrir því að ég valdi handboltann,“ sagði Nielsen hreinskilinn í samtali við ksdh.dk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -