- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Alfreð hæstánægður með bikarhelgina

- Auglýsing -

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, var viðstaddur úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar þar sem Füchse Berlín fór með sigur af hólmi gegn lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarrsonar í Bergischer HC í úrslitaleiknum í Lanxess Arena í Köln í gær.

Alfreð fylgdist eins og gefur að skilja grannt með þýskum leikmönnum liðanna og hrósaði tveimur leikmönnum Füchse og tveimur leikmönnum Bergischer fyrir frammistöðu sína í úrslitaleiknum.


„Hann spilar afskaplega vel. Hann er sífellt að þroskast og verður bara betri og betri,“ sagði Alfreð við sjónvarpsstöðina ARD um örvhenta leikstjórnandann Nils Lichtlein, sem er hluti af þýska landsliðinu en hefur ekki verið í stóru hlutverki til þessa.

Lichtlein lék vel fyrir Füchse í leiknum. „Mathes Langhoff er gríðarlega mikilvægur leikmaður. Hann er fyrst og fremst framúrskarandi varnarmaður,“ sagði Alfreð. Langhoff er einnig leikmaður Füchse.

Vináttuleikur í næsta mánuði

„Í liði BHC fannst mér Aron Seesing vera mjög góður, hann dekkaði virkilega vel. Sören Steinhaus var sömuleiðis góður,“ sagði Alfreð um lærisveina Arnórs Þórs.


Landsliðsþjálfarinn vildi þó ekkert gefa upp um hvort leikmennirnir fjórir verði allir í næsta landsliðshópi. Þýskaland mætir Danmörku í vináttulandsleik í næsta mánuði.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -