Karlalið Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, kom flestum á óvart þegar liðið lagði SC Magdeburg í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar og vann í kjölfarið til silfurverðlauna eftir tap fyrir Füchse Berlín í úrslitaleiknum.
Svo gæti farið að silfrið í bikarkeppninni skili Bergischer, sem er fallbaráttu í þýsku 1. deildinni, í Evrópudeildina á næsta tímabili en það er þó háð því hvernig öðrum liðum gengur í þýsku deildinni og/eða Meistaradeild Evrópu.
Þýskaland á rétt á fimm sætum í tveimur stærstu Evrópukeppnunum, Meistaradeildinni og Evrópudeildinni; einu í Meistaradeildinni og fjórum í Evrópudeildinni.
Eins og Handball World skýrir frá getur þýska handknattleikssambandið farið þess á leit við Handknattleikssamband Evrópu að hækka tvö lið til viðbótar í tign og veita þeim sæti í Meistaradeildinni.
Þurfa að treysta á Füchse
Bergischer þarf að treysta á að Füchse komist í Meistaradeildina á næsta tímabili, þá fá lærisveinar Arnórs Þórs sæti liðsins í Evrópudeildinni. Füchse tryggði sér það með því að verða bikarmeistari.
Refirnir frá Berlín eru ólíklegir til að verja þýska meistaratitilinn en gætu komist í Meistaradeildina með því að hafna í öðru eða þriðja sæti deildarinnar. Sigurvegari Meistaradeildarinnar í ár fær sömuleiðis sæti í keppninni að ári og á Füchse enn möguleika á því að vinna hana.



