- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingabaninn hvergi nærri hættur

- Auglýsing -

Ungverski markvörðurinn Roland Mikler hefur skrifað undir nýjan samning við ungverska félagið OTP Bank-Pick Szeged sem gildir í eitt ár. Mikler er 41 árs og verður orðinn 42 ára þegar samningurinn er á enda næsta sumar.

Hann er Íslendingum vel kunnugur og kemur það ekki til af góðu enda hefur Mikler margsinnis lokað markinu í sigrum Ungverjalands á Íslandi á stórmótum á undanliðnum árum.


Hann hefur leikið með Pick Szeged frá árinu 2019 og hafði áður gert það frá 2010 til 2014. Í millitíðinni lék Mikler með erkifjendunum One Veszprém frá 2014 til 2019. Ferillinn hófst með Dunaferr SE árið 2002 og hefur hann því sitt 25. tímabil á því næsta.

Mikler lék ekki með Ungverjalandi á EM 2026, Íslendingum eflaust til heilla enda vannst leikurinn gegn Ungverjum, vegna þess að hann átti ekki samleið með Chema Rodríguez landsliðsþjálfara.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -