- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gidsel í aðalhlutverki í sjónvarpsþætti

- Auglýsing -

Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims undanfarin þrjú ár, verður í forgrunni í fyrsta þætti nýrrar syrpu heimildaþáttaraðarinnar Leyndardómar fortíðarinnar sem danska ríkisútvarpið hefur veg og vanda af.

Í þáttunum er kafað djúpt í fjölskyldusögur þekktra Dana og verður röðin komin að Gidsel að vera viðfang Leyndardóma fortíðarinnar þegar fyrsti þáttur þriðju syrpu verður frumsýndur á DR þann 7. maí næstkomandi.


Samkvæmt tilkynningu danska ríkisútvarpsins veit Gidsel ekki mikið um fjölskyldusögu sína og því margt sem þáttastjórnandinn Josefine Høgh getur upplýst hann um forfeður sína.

Gidsel verður því í öðruvísi hlutverki á skjám Dana en þeir eru vanir, þar sem hann skelfir iðulega varnir og markverði mótherja sinna.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -