Pólski þjálfarinn Stanislaw Majorek er látinn, 88 ára að aldri. Majorek var þjálfari pólska karlalandsliðsins þegar liðið vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Montréal í Kanada árið 1976.
Frá þessu segir í pólskum fjölmiðlum, þar sem kemur fram að hann hafi fallið frá í dag. Pólska landsliðið hefur ekki fyrr eða síðar unnið til verðlauna á Ólympíuleikum.
Majorek kom að þjálfun pólskra landsliða í rúman áratug. Fyrst tók hann við starfi aðstoðarþjálfara hjá U18 ára landsliði karla árið 1967 og var síðar ráðinn aðalþjálfari U21 árs landsliðsins.
Árið 1970 var Majorek svo ráðinn þjálfari A-landsliðsins ásamt Janus Czerwinski. Þeir þjálfuðu liðið í sameiningu til sumarsins 1976. Eftir bronsverðlaunin á ÓL það ár þjálfaði Majorek liðið ásamt Igor Paura til ársins 1978. Czerwinski var hinsvegar þjálfari íslenska karlandsliðsins 1976 til 1977 og í þjálfarateyminu á HM 1978.
Árin 1969 til 1971 þjálfaði hann Stal Mielec í heimalandinu og vann pólsku bikarkeppnina árið 1971. Frá 1979 til 1981 þjálfaði Majorek karlalandslið Lúxemborgar og eftir það vann hann í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um tæplega 15 ára skeið.



