Flestir þeirra íslensku leikmanna sem voru í eldlínunni í átta liða úrslitum norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla í kvöld létu afskaplega vel að sér kveða. Kolstad og Elverum tryggðu sér sæti í undanúrslitum en Drammen er á leið í oddaleik.
Íslendingalið Kolstad heimsótti Nærbø og vann öruggan sigur, 33:24. Þar með vann Kolstad einvígið 2:0. Elverum heimsótti svo Fjellhammer og vann 33:32 og þar með einvígið 2:0.
Benedikt Gunnar Óskarsson átti stórleik fyrir Kolstad er hann skoraði sex mörk, þar af eitt úr vítakasti, og gaf fjórar stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson lék frábærlega í markinu, varði 11 skot og var með 42% hlutfallsmarkvörslu.
Þá var Sigvaldi Björn Guðjónsson samur við sig og skoraði fimm mörk. Benedikt Gunnar var markahæstur í leiknum og Sigvaldi Björn næstmarkahæstur.
Tryggvi skoraði fjögur og Ísak varði eitt
Tryggvi Þórisson lét óvenju mikið til sín taka í sóknarleiknum hjá Elverum en hann spilar mestmegnis í vörninni þó Selfyssingurinn sé sömuleiðis kröftugur línumaður.
Tryggvi nýtti aukin tækifæri í sókninni með því að skora fjögur mörk.
Ísak Steinsson, sem er nýsnúinn aftur eftir meiðsli, varði einungis eitt skot í marki Drammen þegar liðið tapaði 39:35 fyrir Runar í Sandefjord. Því þurfa liðin að mætast í oddaleik í Drammen, að líkindum um helgina.
Markvarsla var sama og engin hjá Drammen í leiknum þar sem hinn markvörður liðsins, Oscar Larsen Syvertsen, varði aðeins tvö skot.



