- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Kári framlengir á Seltjarnarnesi

- Auglýsing -

Kári Kvaran, leikmaður Gróttu, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Kári er 24 ára vinstri hornamaður.

Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Gróttu undanfarin ár og hefur alls leikið 74 leiki. Á nýafstöðnu tímabili lék Kári 22 leiki og skoraði í þeim 51 mark.


„Það eru virkilega góð tíðindi að Kári verði áfram í Gróttu. Hann er klókur leikmaður með góða skottækni. Það verða miklar vonir bundnar við Kára á næstu leiktímabilum,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

Grótta hafnaði í öðru sæti Grill 66 deildarinnar á tímabilinu, komst þannig í umspil um sæti í Olísdeildinni en féll úr leik gegn Herði í undanúrslitum umspilsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -