- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Frammistaðan ekki talin samræmi við launin

- Auglýsing -

Forráðamenn Pick Szeged töldu sænska handknattleiksmanninn Jim Gottfridsson vart hafa unnið fyrir launum sínum. Þess vegna kölluðu þeir hann á sinn fund fyrir nokkrum vikum þar sem þeir spurðu hvenær frammistaða hans yrði í samræmi við þau laun sem hann hefði hjá félaginu. Þessu heldur þýska blaðið Sport Bild fram í frétt sinni. Mikið fjaðrafok hefur verið síðustu daga vegna óvæntrar uppsagnar ungverska liðsins á þriggja ára samningi sínum við Gottfridsson.


Gottfridsson var rekinn frá Pick Szeged – ætlar að leita réttar síns

Brostnar vonir

Í framhaldi af fundinum munu stjórnendur Pick Szeged hafa ákveðið að segja upp samningi sínum við sænska leikstjórnandann. Hann þótti ekki hafa staðið undir væntingum á leiktíðinni. Gottfridsson kom til ungverska liðsins á síðasta sumri. Voru mikla vonir bundnar við kappann og gerður við hann þriggja ára samningur nærri hálfu öðru ári áður en samningur Gottfridsson við Flensburg rann út.

Pick Szeged svarar yfirlýsingu Gottfridsson

Orð gegn orði

Gottfridsson hefur haldið því fram að uppsögnin hafi verið einhliða og án fyrirvara á meðan Szeged segir að allt hafi farið fram í samræmi við gildandi reglur. Orð stendur á móti orði. Leikmannasamband evrópu hefur hefur heitið fullum stuðningi við Svíann.

Standa þétt við bakið á Gottfridsson

Leitt til lykta fyrir dómstólum

Sennilegt er að málið verði leitt til lykta fyrir dómstólum. Samkvæmt upplýsingum hafa Gottfridsson og lögfræðingar hans lagt á ráðin um að fara með uppsögn samningsins fyrir ungverskan vinnurétt.

Apelgren valdi Gottfridsson þrátt fyrir hafa sagt honum upp hjá Szeged

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -