Soffía Helen Sölvadóttir, bráðefnilegur markvörður Gróttu, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið. Hann gildir til næstu tveggja ára, til sumarsins 2028.
Soffía Helen er einungis 15 ára gömul en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað sína fyrstu meistaraflokksleiki með Gróttu í Grill 66 deildinni í vetur.
Hún er ein af markvörðum U16 ára landsliðsins og hefur þegar varið sín fyrstu skot í leikjunum tveimur sem hún spilaði með Gróttu í Grill deildinni. Soffía Helen æfir með meistaraflokki en er enn gjaldgeng í 4. flokk félagsins.
„Það eru virkilega góð tíðindi að Soffía hafi skrifað nýjan samning en hún er virkilega efnilegur markvörður. Það verður gaman að sjá hana þroskast í Gróttubúningnum en miklar vonir eru bundnar við Soffíu í framtíðinni,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.



