Rhein-Neckar Löwen hefur mikinn áhuga á því að semja við landsliðsmanninn Elvar Örn Jónsson, sem er leikmaður stórliðs SC Magdeburg. Selfyssingurinn yrði hugsaður sem arftaki Sebastian Heymann, sem gengur til liðs við TSV Hannover-Burgdorf í sumar.
Áætlað var að Heymann gengi til liðs við Hannover-Burgdorf sumarið 2027 en félagið hefur ákveðið að festa kaup á honum til þess að fá vinstri skyttuna ári fyrr til liðs við sig.
Þýski miðillinn Sport Bild skýrir frá því að Elvar Örn sé efstur á blaði hjá Ljónunum, þar sem sveitungi hans frá Selfossi Haukur Þrastarson er sannkallaður lykilmaður.
Sport Bild segir Elvar Örn ekki vera mótfallinn mögulegum skiptum til Löwen þar sem hann sé ekki fyllilega sáttur við spiltíma sinn hjá Magdeburg, sem stefnir hraðbyri í átt að þýska meistaratitlinum. Ef af verður skiptun er afar ósennilegt að þau eigi sér stað fyrr en að árið 2027 vegna þess að Magdeburg mun ekki hafa mikinn áhuga á að selja Elvar Örn.


