- Auglýsing -
Á samfélagsmiðlum Handknattleikssambands Evrópu í dag er ótrúleg markvarsla Viktors Gísla Hallgrímssonar í fræknum átta marka sigri á Svíþjóð í milliriðli á EM 2026 í Malmö rifjuð upp.
Viktor Gísli varði þá stórglæsilega frá Eric Johansson sem hafði brotist í gegn og reynt að lauma boltanum undir íslenska markvörðinn.
„Markvarsla ársins?!“ stendur í myndskeiðinu undir ljúfum tónum frá Joe Keery. Markvörsluna glæsilegu má rifja upp hér að neðan:
- Auglýsing -



