Lokahóf meistaraflokka HK fór fram síðastliðinn föstudag í veislusal félagsins þar sem frábærum árangri á liðnu tímabili var fagnað. Meistaraflokkur karla náði frábærum árangri og komst í úrslitakeppni annað árið í röð. Meistaraflokkur kvenna náði einnig frábærum árangri með því að vinna deildina og komust þar með upp í Olís deildina eftir 3 ár í Grill 66 deildinni.
Verðlaun voru veitt í þremur flokkum. Besti leikmaður, mikilvægasti leikmaður og efnilegasti leikmaður.
U-lið karla:
Besti leikmaður: Örn Alexandersson.
Mikilvægasti leikmaður: Ingibert Snær Erlingsson.
Efnilegasti leikmaður: Styrmir Hugi Sigurðarson.
Meistarflokkur karla:
Besti leikmaður: Sigurður Jefferson Guarino.
Mikilvægasti leikmaður: Styrmir Máni Arnarsson.
Efnilegasti leikmaður: Örn Alexandersson.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaður: Tinna Ósk Gunnarsdóttir.
Mikilvægasti leikmaður: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir.
Efnilegasti leikmaður: Danijela Sara Bokan Björnsdóttir.
Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir leikjafjölda
200 leikir fyrir meistaraflokk kvenna:
Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir.
100 leikir fyrir meistaraflokk kvenna:
Leandra Náttsól Salvamoser.
Katrín Hekla Magnúsdóttir.
100 leikir fyrir meistaraflokk karla:
Róbert Örn Karlsson.
Örn Alexandersson.
Að lokum vill handknattleiksdeild HK þakka Hilmari Guðlaugssyni fráfarandi þjálfara meistaraflokks kvenna fyrir vel unnin störf síðastliðin 3 ár. Undir stjórn Hilmars hafa ungir leikmenn HK sem og þeir eldri fengið að bæta sig og þróað sinn leik sem skilar þeim árangri í komandi framtíð.



