Þýska stórliðið THW Kiel tapaði ansi óvænt 33:30 fyrir RK Nexe Nasice í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla í Króatíu í gærkvöldi. Fyrir fram höfðu þýskir miðlar búist við þægilegri viðureign.
„Það er einungis hálfleikur. Nú vita allir nákvæmlega hverju megi búast við á þriðjudag. Ég hlakka mikið til að mæta Nexe aftur. Ég hlakka virkilega til þess að mæta þeim með stuðningsmenn okkar að styðja við bakið á okkur,“ sagði þjálfarinn Filip Jicha í samtali við heimasíðu Kiel.
Tímabilið hefur verið vonbrigði fyrir Kiel þar sem liðið er í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar og hefur ekki verið í neinni baráttu um meistaratitilinn eins og vonir standa ávallt til hjá stórveldinu.
Kiel fær Nexe í heimsókn í öðrum leik liðanna næstkomandi þriðjudagskvöld og þarf að vinna upp þriggja marka mun til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.



