Forvígismaður þýska félagsins VfL Oldenburg er ekki á eitt sáttur við að stjórnendur 1. deildar kvenna hafi ákveðið að hafna umsókn félagsins um leyfi fyrir því að halda úti ungmennastarfi.
Auk þess hefur deildin ákveðið að sekta Oldenburg um 12.000 evrur, jafnvirði rúmlega 1,7 milljóna króna. Andreas Lampe, framkvæmdastjóri félagsins, er forviða yfir ákvörðuninni.
„Réttlætingin fyrir þessu er og var grín. Við höfum unnið frábært unglingastarf um margra ára skeið og í stað þess að það sé okkur til tekna þurfum við núna að borga sekt,“ sagði Lampe í samtali við þýska miðilinn Sport Bild.
Sér ekki muninn
Leyfisbréf fyrir unglingastarf er nokkurs konar gæðastimpill fyrir lið í þýsku 1. deildinni þar sem litið er til þess hvort skipulag, æfingaumhverfi og stuðningskerfi sé í lagi. Oldenburg telur sig uppfylla öll skilyrði en það sem varð félaginu að falli þegar ákvörðunin var tekin er að styrktaræfingar fara ekki fram innan húsakynna Oldenburg.
Liðsmenn Oldenburg fara þess í stað í heilsurækt fyrir utan svæði félagsins undir handleiðslu fagfólks. „Ég sé ekki muninn. Leikmenn okkar fylgja einstaklingsbundnu prógrammi og það eru þjálfarar á svæðinu. Hvað vill sambandið að við gerum meira?“ velti Lampe fyrir sér.
Hann benti á að Oldenburg leggi 100.000 evrur, 14,5 milljónir króna, í unglingastarf sitt á hverju ári og kallar félagið nú eftir því að skilyrði og refsingar verði endurskoðaðar þar sem núverandi regluverk styðji ekki við þróun unglingastarfs með sanngjörnum hætti.



