Daniel Duhr, dálkahöfundur hjá þýska miðlinum Handball World, tileinkar dálk sinn á vefnum í dag Guðjóni Val Sigurðssyni, þjálfara VfL Gummersbach. Þar sparar Duhr ekki stóru orðin og hvetur félagið til þess að framlengja samning Guðjóns Vals tafarlaust.
Ellegar megi Gummersbach eiga von á því að stórveldi Evrópu reyni að lokka íslenska þjálfarann til sín. Guðjón Valur hefur náð eftirtektarverðum árangri með Gummersbach á undanförnum árum og til að mynda farið með liðið úr þýsku B-deildinni upp í 1. deildina þar sem liðið er nú í fjórða sæti.
„Í dag er Gummersbach aftur orðið félag sem talað er um í samhengi við Evrópukeppni. Félag sem fólk talar um í tengslum við þróun. Félag sem fólk talar um þegar litið er til einnar mest spennandi vegferðar í þýskum handbolta.
VfL Gummersbach er með landsliðsmenn, laðar að sér hæfileikaríka leikmenn á alþjóðavísu og þetta hefðbundna félag hefur umturnast í alvöru íþróttafélag á ný. Það er kannski stærsti munurinn á því sem áður var: Gummersbach reiðir ekki lengur einungis á glæsta sögu sína. Gummersbach er að byggjast upp til framtíðar.
Og miðpunktur þess alls er Sigurðsson. Hann er ekki bara búinn að skila úrslitum. Hann hefur bætt leikmenn. Hann hefur umbreytt hæfileikum í áreiðanleika. Hann er búinn að breyta félagi með glæsta sögu aftur í lið með skýra stefnu,“ skrifar Duhr meðal annars í dálki sínum.
Taktískur þungavigtarmaður
Guðjón Valur, sem var valinn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni árið 2023, er samningsbundinn Gummersbach til sumarsins 2027 og telur Duhr að framkvæmdastjórinn Christoph Schindler eigi að semja við hann að nýju og það strax.
„Gummersbach hefur státað sig af mörgum stórum nöfnum í gegnum tíðina. Í dag er VfL með stórt nafn sem þjálfara. En þetta nafn vekur ekki upp fortíðarþrá; það endurspeglar framtíðina. Gummersbach hefur ekki bara tækifæri til þess að eiga annað gott tímabil heldur leggja grunn að nýju velmegunarskeiði. Til þess þurfa þeir leikmenn, peninga, innviði og þolinmæði.
En fyrst og fremst þurfa þeir þjálfara sem getur búið til lið úr þessu öllu. Því ættu þeir að framlengja við Gogga fljótlega! Og þar til blekið hefur þornað skulu þeir binda lóð við fótinn á honum. Því Gummersbach ætti einfaldlega ekki að láta taktískan þungavigtarmann í handbolta labba í burtu,“ skrifar Duhr einnig.



