Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar í IK Sävehof féllu í dag úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þeir töpuðu með þriggja marka mun, 37:34, fyrir Malmö í Baltiska Hallen í Malmö. IK Sävehof vann ekki leik í rimmu liðanna. Malmö-liðið vann þrisvar og leikur þar með til úrslita um sænska meistaratitilinn við IFK Kristianstad eða Alingsås.
Birgir Steinn skoraði sjö mörk í 11 skotum á síðasta leiktímabili á hans fyrstu leiktíð í Svíþjóð. Hann kom til sænska liðsins síðasta sumar frá Aftureldingu.
Í hinni rimmu undanúrslita hefur Alingsås tvo vinninga en deildarmeistarar IFK Kristianstad einn. Liðin leiða saman hesta sína í Alingsås á miðvikudaginn.
Einar Bragi og félagar halda lífi í einvíginu


