- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Thea Imani heldur til Rúmeníu

- Auglýsing -

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir hefur samið við rúmenska félagið SCM Craiova um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum Vals.

Thea hefur verið lykilmaður hjá Val um langt árabil og unnið fjöldann allan af titlum með liðinu. Enn gæti bæst þar við þar sem Valur er 1:0 yfir í úrslitaeinvígi gegn ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn.


„Framlag hennar til liðsins og félagsins er mikils metið, bæði af samherjum, þjálfurum og stuðningsfólki. Við hjá Val þökkum Theu innilega fyrir hennar framlag til félagsins og óskum henni alls hins besta í nýju og spennandi umhverfi í Rúmeníu.

Við erum stolt af hennar árangri og hlökkum til að fylgjast með henni takast á við nýjar áskoranir á næsta kafla ferilsins,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Vals.

Sú fyrsta í Rúmeníu

SCM Craiova er í 9. sæti af 12 liðum rúmensku úrvalsdeildarinnar þegar tveimur umferðum af 22 er ólokið. Craiova er sjöunda fjölmennasta borg Rúmeníu.

Thea Imani verður fyrsta íslenska handboltakonan til þess að leika í Rúmeníu.


Thea Imani er 29 ára gömul og hefur leikið með Val frá árinu 2021. Hún lék upp yngri flokka Fylkis en fór til Volda í Noregi 2017. Tveimur árum síðan gekk hún til liðs við Oppsal og var þar í eitt ár.

Þar á eftir lék hún í rúmt hálft ár með Aarhus Håndbold en kom heim og gekk til liðs við Val í upphafi árs 2021. Thea Imani hefur leikið 98 landsleiki og skorað í þeim 224 mörk. Hún var valin handknattleikskona ársins 2025 af HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -