Karsten Günther, framkvæmdastjóri þýska félagsins DHfK Leipzig, viðurkennir að það sé honum þungbært að sjá karlaliðið berjast í bökkum á botni 1. deildarinnar og að það hafi verið mistök að selja Viggó Kristjánsson til HC Erlangen í janúar 2025.
Leipzig er í harðri fallbaráttu en þrátt fyrir að vera á botninum eru aðeins tvö stig í öruggt sæti þegar fjórar umferðir eru óleiknar. Fall niður í B-deild kæmi eins og gefur að skilja illa niður á rekstrinum.
„Breyting á fjárhagsáætluninni vegna falls milli deilda myndi fela í sér grimmilegan niðurskurð fyrir allt félagið eins og það leggur sig. Ég myndi gjarna vilja forða okkur frá því,“ sagði Günther í samtali við þýsku sjónvarpsstöðina Dyn, sem Handball World skýrir frá.
Hefðum getað gert hlutina öðruvísi
Hann sér eftir ýmsum ákvörðunum á undanförnum árum og nefnir þar sérstaklega söluna á Viggó, sem blómstrar nú hjá Erlangen og fer til SG Flensburg-Handewitt sumarið 2027.
„Er ég lít til baka hefðum við svo sannarlega getað gert ákveðna hluti öðruvísi. Á þeim tíma tókum við þessar ákvarðanir og við vorum allir sannfærðir um að það væru rétt skref að taka.
Það er ekki einhver einn ákveðinn atburður sem hefur úrslitaáhrif. Það er samansafn atburða og salan á Viggó til Erlangen er svo sannarlega einn þeirra,“ sagði Günther.



