- Auglýsing -
ÍBV og Valur mætast í öðrum leik úrslitaeinvígis Olísdeildar kvenna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 18 í kvöld. Valur er 1:0 yfir í einvíginu og sem fyrr þarf þrjá vinninga til þess að hampa Íslandsmeistaratitlinum.
Fyrsta leik úrslitanna lauk með 39:33 sigri Vals í N1 höllinni á laugardag. Valur getur með sigri í kvöld komið sér í kjörstöðu á meðan ÍBV freistar þess að jafna metin.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum og kaupa má miða á Stubbi.
Leikur kvöldsins
Olísdeild kvenna, úrslit – annar leikur:
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja: ÍBV – Valur kl. 18
- Auglýsing -



