- Auglýsing -
Dagur Fannar Möller, leikmaður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2029. Fyrri samningur átti að renna út sumarið 2028 og er því um eins árs framlengingu að ræða.
Dagur Fannar er 23 ára gamall línumaður sem var valinn besti leikmaður Fram síðasta sumar eftir að liðið varð Íslands- og bikarmeistari.
„Dagur kom til félagsins með æsku vini sínum Tryggva Garðari [Jónssyni] á sínum tíma og hefur bætt sig gífurlega á tíma sínum hjá okkur.
Dagur er orðinn alger lykilmaður í okkar liði og við erum hrikalega ánægð með að hann verði áfram hjá okkur. Ef þið rekist á Dag, knúsið hann til hamingju!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.
- Auglýsing -



