- Auglýsing -
Uppselt er á oddaleik Vals og FH í úrslitum Olísdeildar karla sem fram fer í N1 höllinni á Hlíðarenda næstkomandi fimmtudagskvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og þar ræðst hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitlinum.
Miðasala á leikinn hófst í hádeginu í dag og ekki leið á löngu þar allir miðar seldust upp. Ljóst er að eftirvæntingin er geysileg og ekki að ósekju enda kynngimagnað einvígi.
Miðasala er hafin á úrslitaleik Vals og FH
FH hafði eins marks sigur, 37:36, í ótrúlegum tvíframlengdum spennutrylli í Kaplakrika í gærkvöldi og því ráðast úrslitin í oddaleik.
Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann sýndur í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Sjónvarpi Símans.
- Auglýsing -


