- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Flensburg sló tvö met og eygir annað

- Auglýsing -

Þýska félagið SG Flensburg-Handewitt sló tvö met í Evrópudeild karla með því að leggja TSV Hannover-Burgdorf að velli, 43:35, í síðari leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar í gærkvöldi.

Á heimasíðu Handknattleikssambands Evrópu, EHF, er greint frá því að ekkert lið hafi nokkru sinni skorað jafn mörg mörk í einum leik í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla og Flensburg gerði í gær.


Sömuleiðis hefur ekkert lið skorað jafn mörg mörk og Flensburg yfir tvo leiki í átta liða úrslitum keppninna. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli, 39:39, og skoraði Flensburg því alls 82 mörk í leikjunum tveimur.

Flensburg er ríkjandi meistari í Evrópudeildinni og hefur raunar unnið hana í tvö síðustu skipti. Liðið getur sett nýtt met þar sem ekkert lið hefur nokkru sinni unnið Evrópudeildina þrjú ár í röð.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -