- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur tilnefndur sem leikmaður mánaðarins

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson, landsliðsmaður og leikmaður Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni, er á meðal sjö leikmanna deildarinnar sem eru tilnefndir sem besti leikmaður aprílmánaðar.

Haukur hefur leikið frábærlega fyrir Ljónin á sínu fyrsta tímabili í sterkustu deild heims og var sérlega öflugur í síðasta mánuði.


Selfyssingurinn lék þrjá deildarleiki í apríl, skoraði í þeim 26 mörk og gaf auk þess 27 stoðsendingar, sem gerir níu stoðsendingar að meðaltali í leik. Er hann stoðsendingahæstur í deildinni og hefur fimm sinnum á tímabilinu skorað tíu mörk eða fleiri í einum leik.

„Fáir leikmenn hafa skinið jafn skært sóknarlega og Haukur Þrastarson undanfarinn mánuð. Íslendingurinn kom einungis inn í deildina fyrir þetta tímabil og hefur allt frá upphafi verið órjúfanlegur hluti af sókn ljónanna,“ sagði meðal annars í umfjöllun um Hauk á heimasíðu þýsku 1. deildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -