Fjórða árið í röð féllu Bjarki Már Elísson og liðsfélagar í ungverska meistaraliðinu One Veszprém úr leik með minnsta mun í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla. Þeir töpuðu í kvöld í vítakeppni fyrir Füchse Berlin í síðari viðureign liðanna. Að loknum 120 mínútum var staðan jöfn, 65:65. Gripið var til vítakeppni sem þýska liðið vann, 4:3. Mathias Gidsel innsiglaði sigur Berlínarliðsins.
Þar með er ljóst að draumur Bjarka Más Elíssonar um að taka þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu með One Veszprém verður að engu. Hann rennur út af samningi hjá félaginu í sumar. Síðast er fréttist benti ekki margt til þess að honum standi til boða nýr samningur.

Í sannkölluðum spennutrylli mátti vart á milli liðanna sjá í Max Schmeling-Halle í kvöld. Auk sigurmarks Gidsel úr vítakastinu þá varði serbneski landsliðsmarkvörðurinn Dejan Milosavljev tvö vítaköst frá leikmönnum One Vespzrém. Bjarki Már var einn þriggja leikmanna One Veszprém sem skoruðu í vítakeppninni.
Füchse Berlin tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar annað árið í röð. Leikið verður í Lanxess Arena í Köln 13. og 14. júní.



