Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, þjálfarar U20-ára landsliðs karla, hafa valið lokahóp sinn fyrir Evrópumótið í aldursflokknum sem fer fram í Rúmeníu í júlí.
Leikmannahópurinn kemur saman til æfinga í þessum mánuði og svo aftur í aðdraganda mótsins. Fjöldi sterkra leikmanna sem eru í lykilhlutverkum hjá liðum sínum í Olísdeildinni eru í hópnum.
Lokahópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Alexander Ásgrímsson, ÍR.
Jens Sigurðarson, Val.
Aðrir leikmenn:
Andri Erlingsson, ÍBV.
Ágúst Guðmundsson, HK.
Bessi Teitsson, Gróttu.
Birgir Leó Stefánsson, Haslum.
Dagur Leó Fannarsson, Val.
Daníel Montoro, Val.
Elís Þór Aðalsteinsson, ÍBV.
Garðar Ingi Sindrason, FH.
Harri Halldórsson, Aftureldingu.
Ingvar Dagur Gunnarsson, FH.
Jens Bragi Bergþórsson, KA.
Jökull Blöndal Björnsson, ÍR.
Magnús Jónatansson, KA.
Stefán Magni Hjartarson, Aftureldingu.
Til vara:
Antoine Óskar Pantano, Gróttu.
Bernard Kristján Owusu Darkoh, ÍR.
Daníel Bæring Grétarsson, Aftureldingu.
Sigurjón Bragi Atlason, Aftureldingu.



