- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grétar Áki og Sólveig Lára tilkynntu hóp fyrir æfingaferð

- Auglýsing -

Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested, þjálfarar U18-ára landsliðs kvenna, hafa valið lokahóp fyrir æfinga- og keppnisferð til Póllands fyrri hluta sumars. Því miður tryggði 18 ára landsliðið sér ekki sæti á HM þetta árið. Ísland er þriðja varaþjóð. Í stað HM verður þess vegna farið í æfinga- og keppnisferð til Póllands.

Flestir leikmenn liðsins þegar tekið sín fyrstu skref með meistaraflokki og sumir hverjir eru þar í stórum hlutverkum auk þess að hafa átt sæti í U17 ára landsliðinu á EM á síðasta ári.


Leikmannahópurinn samanstendur af eftirfarandi leikmönnum:

Agnes Lilja Styrmisdóttir, ÍBV.
Bryndís Hulda Ómarsdóttir, Stjörnunni.
Danijela Sara Björnsdóttir, HK.
Ebba Guðríður Ægisdóttir, Haukum.
Erla Rut Viktorsdóttir, Haukum.
Eva Lind Tyrfingsdóttir, Selfoss.
Eva Steinsen Jónsdóttir, Val.
Guðrún Ásta Magnúsdóttir, Val.
Hekla Sóley Halldórsdóttir, HK.
Katla Kristín Hrafnkelsdóttir, Fram.
Klara Káradóttir, ÍBV.
Laufey Helga Óskarsdóttir, Val.
Roksana Jaros, Haukum.
Tinna Ósk Gunnarsdóttir, HK.
Valgerður Elín Snorradóttir, Stjörnunni.
Vigdís Arna Hjartardóttir, Stjörnunni.

Til vara:

Anna Margrét Alfreðsdóttir, Val.
Dagný Þorgilsdóttir, FH.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -