- Auglýsing -
- Blær Hinriksson skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi Leipzig í heimsókn til Hannover–Burgdorf í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, 36:33. Leipzig rekur áfram lestina í deildinni þegar liðið á þrjá leiki eftir með 13 stig. GWD Minden og HSG Wetzlar eru tveimur stigum framar í næstu sætum fyrir ofan.
- Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf sem situr í 11. sæti þýsku 1. deildarinnar.
- Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, gerði jafntefli í gærkvöld við GWD Minden á útivelli, 28:28. Bergischer HC er í 15. sæti af 18 liðum þýsku 1. deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan Wetzlar og Minden.
- Sveinn Jóhannsson lék í rúmar sjö mínútur með Chambéry og skoraði eitt mark þegar liðið gerði jafntefli við Nîmes, 31:31, í 27. umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í fyrrakvöld. Chambéry er í 5. sæti deildarinnar með 33 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Fimm stig skilja að Chambéry og Limoges sem er í fjórða sæti en það veitir þátttökurétt í Evrópukeppni á næsta ári.
- Auglýsing -



