- Auglýsing -
Kolstad leikur til úrslita við Drammen HK í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Kolstad vann öruggan sigur á Bergen Håndball, 38:32, í oddaleik í Kolstad Arena í Þrándheimi í dag. Fyrsti úrslitaleikur Kolstad og Drammen fer fram í Þrándheimi 23. maí.
Kolstad var með tveggja marka forskot í hálfleik, 20:18. Liðið gerði út um leikinn á fyrstu 15 mínútum síðari hálfleiks og náði m.a. 11 marka forystu, 31:20.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk og gaf þrjár stoðsendingar fyrir Kolstad. Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði skoraði þrjú mörk. Sigurjón Guðmundsson varði 9 skot, þar af eitt vítakast.
Ísak og félagar í úrslit – Drammen lagði Elverum
- Auglýsing -



