- Auglýsing -
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk og Reynir Þór Stefánsson eitt mark þegar Melsungen vann Eisenach, 37:34, á heimavelli í 31. umferð þýsku 1. deildarinnar í gær. Melsungen er í sjötta til sjöunda sæti deildarinnar ásamt Lemgo með 36 stig.
- Úlfar Páll Monsi Þórðarson var næstmarkahæstur hjá RK Alkaloid með sex mörk í eins marks sigri á Tikves, 30:23, í úrslitakeppni fjögurra efstu liða úrvalsdeildarinnar í Norður-Makedóníu í gær. RK Alkaloid situr í fjórða sæti.
- Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk í þriggja marka tapi FC Porto fyrir Benfica, 32:29, í næst síðustu umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Leikið var á heimavelli Benfica í Lissabon. Stiven Tobar Valencia var ekki í leikmannahópi Benfica-liðsins sem er í öðru sæti keppninnar en Porto í þriðja sæti.
- Sporting Lissabon varð meistari í Portúgal um síðustu helgi. Sú staðreynd breytti engu þegar kom að leiknum við Águas Santas í gær. Sporting-liðið sló ekkert af og vann öruggan sigur, 37:29. Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvö mörk fyrir Sporting.
- Viktor Gísli Hallgrímsson átti stórleik í marki Barcelona í 14 marka sigri á Guadalajara, 38:24, í 28. umferð spænsku 1. deildarinnar á útivelli í gær. Viktor Gísli varði 17 skot, 41%, en hann stóð allan leikinn í markinu. Barcelona er efst í deildinni með 56 stig og hefur fyrir löngu unnið deildarkeppnina.
- Elmar Erlingsson skoraði ekki mark þegar lið hans, Nordhorn, vann TuS Ferndorf, 35:31, á útivelli í 31. umferð 2. deildar þýska handknattleiksins í gær. Nordhorn situr í sjötta sæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir.
- Tjörvi Týr Gíslason skoraði heldur ekki mark þegar HC Oppenweiler/Backnang tapaði á heimavelli fyrir Bietigheim, 32:27, í 2. deild þýska handknattleiksins þegar efsta og neðsta lið deildarinnar mættust. HC Oppenweiler/Backnang rekur lestina og er fallið úr deildinni.
- Auglýsing -



